N - PowerPoint PPT Presentation

1 / 22
About This Presentation
Title:

N

Description:

N skipan opinberum rekstri og breytt hlutverk sveitarstj rnarmanna Huglei ing flutt m l ingi um skil stj rns slu og stj rnm la ... – PowerPoint PPT presentation

Number of Views:28
Avg rating:3.0/5.0
Slides: 23
Provided by: bif16
Category:
Tags: hinn

less

Transcript and Presenter's Notes

Title: N


1
Nýskipan í opinberum rekstri og breytt hlutverk
sveitarstjórnarmanna

Hugleiðing flutt á málþingi um skil stjórnsýslu
og stjórnmála á sveitarstjórnarstiginu í HÍ, 23.
apríl 2007. Dr. Grétar Þór Eyþórsson Háskólinn á
Bifröst
2
Erindið
  • Vangaveltur um breytingar á stöðu og hlutverki
    sveitarstjórnarmanna síðastliðinn 1-1,5 áratug
    (eða svo)
  • Hvaða þátt á innleiðing nýskipanar í opinberum
    rekstri (New Public Management) í því?
  • Áhrif á starf og hlutverk sveitarstjórnarmanna
  • Hvernig breyst?
  • Afleiðingar þess
  • Hvernig pólitíkusarnir hafa því hert sóknina yfir
    mörk stjórnmála og stjórnsýslu í seinni tíð
  • Eða...horfið af vettvangi

3
Erindið
  • Sú mynd sem ég dreg upp er ekki endilega
    fullkomlega raunsönn mynd af bæjarfulltrúa eða
    hreppnefndarmanni nútímans á Íslandi
  • Á eflaust mun betur við í stærri
    sveitarfélögunum, þar sem nýskipan í rekstri
    hefur helst verið innleidd
  • Þessi sveitarstjórnarmaður er einskonar
    erkitýpa, en einhver ætti að þekkja sjálfan sig
    eða hluta af sér þarna
  • Er þó sú mynd sem vísindamenn í Noregi og Svíþjóð
    hafa dregið upp
  • Westerståhl (1997) Politikerrollen i ett
    tidsperspektiv.
  • Röisieland (2002) Paradoksal parlametalisme med
    metapolitiske motivasjoner
  • Göransson (2006) Alla reformer måste bygga på
    demokrati

4
Erindið
  • Ég mun velta því upp hvort þessar breytingar á
    hlutverkinu geti svarað tveimur mikilvægum
    spurningum
  • Hefur þetta orðið til að auka áhuga kjörinna
    fulltrúa á bæjarstjórastólum og gert þá meira
    áberandi í nefndaformennsku?
  • Hefur þetta orðið til að auka brottfall úr
    sveitarstjórnum?
  • Athugið
  • Höfundur byggir erindið ekki á eigin rannsóknum,
    heldur á því að hafa kynnt sér aðrar rannsóknir
  • Því eru þær hugmyndir sem varpað er fram á
    frumstigi og útheimta frekari rannsóknir
  • Athugasemdir og ábendingar því vel þegnar

5
Nýskipan í opinberum rekstri
  • Breyttar áherslur koma fram í opinberri stjórnun
    á síðustu áratugum síðustu aldar
  • Bakgrunnur
  • Kenningar almannavalsskólans um að minnka umsvif
    opinbera geirans og gera hann jafnframt
    skilvirkari hið opinbera ætti ekki að standa í
    fyrirtækjarekstri
  • Hagfræðikenningar um að minni ríkisafskipti og
    lægri skattar þýddu öflugra einkaframtak og
    atvinnulíf
  • Kenningar um að markaðurinn væri hentugra
    aðhaldstæki en lög og reglur

6
Nýskipan í opinberum rekstri
  • Hugmyndin um hina nýju opinberu stjórnun (New
    public management) kemur fram
  • Ástæðurnar
  • Kenningarnar sem raktar voru áðan, auk
  • Vaxandi fjárhagskreppu ríkisins víða í
    Vesturheimi
  • Almennt aukinnar áherslu á einkavæðingar og ýmsa
    alþjóðavæðingu

7
Nýskipan í opinberum rekstri
  • Aðferðir viðskiptalífsins voru því innleiddar í
    stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga
  • Kúnna og viðskiptavinahugsun hefur almennt aukist
  • Markaðshugsun meira áberandi í rekstrinum
  • Gæðastjórnun Árangursmælingar - Balanced score
    card
  • Markmiðastjórnun
  • Framleiðsla eða veiting þjónustu í auknum mæli í
    höndum aðila úti í þjóðfélaginu
  • Einkavæðingar
  • Úthýsingar

8
Nýskipan í opinberum rekstri
  • Áherslan í opinberum rekstri því meira á
  • framleiðni og hagkvæmni
  • Í stað hinna hefðbundnu aðferða við að meta
    opinberan rekstur
  • lýðræðis, siðferðis og réttaröryggis
  • Ábyrgðin á rekstri er um leið flutt frá
    stjórnmálamönnunum svo þeir geti einbeitt sér að
    þýðingarmeiri hlutum við stefnumótun
  • Smáatriðastjórnunin færist því meira yfir á
    embættismennina en áður

9
Breytt hlutverk kjörinna fulltrúa
  • Hlutverk þeirra þróast meira yfir í að
  • Móta markmið og viðmið
  • Móta stefnu og strategíu til langtíma
  • Einskonar rammalöggjöf
  • Að vera að meira leiti á stefnumörkunarstigi en á
    framkvæmdastigi
  • Hlutverkið þróast því frá því sem er áþreifanlegt
  • Pólitíkin sem slík þynnist út
  • Verkefni hins pólitíska fulltrúakerfis minnka

10
Breytt hlutverk kjörinna fulltrúa
  • Áður Pólitískir fulltrúar lögðu fram tilbúnar
    lausnir á málum
  • Kúnnaáhersla í rekstrinum þýðir að kúnninn geti
    valið á milli valkosta í þjónustunni
  • Þegar kúnninn hefur val hefur hann um leið áhrif
    á þjónustuna
  • Það kallar á framboð og sveigjanleika
  • Afleiðing Kjörni fulltrúinn sér fyrst og fremst
    til þess að búðin hafi það vöruúrval sem
    kúnnarnir óska eftir í stað þess að vinna í að
    forma þjónustuna
  • Sveitarstjórnarmennirnir orðnir einskonar
    verslunarstjórar

11
Hlutverkaskipti
  • Völd embættismannanna hafa því aukist
  • Þeirra hefur orðið útfærsluhlutverkið
  • Þeir sjá um hina raunverulegu framkvæmd sem
    pólitíkusinn sá um áður
  • Með þessu hefur skilgreiningarvaldið á
    pólitíkinni að einhverju leyti færst frá
    pólitíkusunum

12
Noregur
  • Norsku sveitarstjórnarlögin frá 1994 voru mjög í
    anda NPM
  • Hinir kjörnu fulltrúar fengu annað hlutverk
  • Skyldu setja rammana sem embættiskerfið starfaði
    innan
  • Margar rannsóknir hafa og sýnt að fulltrúarnir
    hafa átt erfitt með að aðlaga sig þessu nýja
    hlutverki
  • Þónokkrar tilraunir síðan þá til að snúa til baka
    til að endurheimta eitthvað af valdi
    stjórnmálamanna á kostnað embættismanna
  • Færa þá að einhverju leyti tilbaka til afgreiðslu
    einstakra handfastra mála

13
Klípa hinna kjörnu fulltrúa
  • Bengt Göransson fyrrv. menningarmálaráðherra Svía
    og sveitarstjórnarmaður fjallaði um þetta
    breytta hlutverk í erindi á norrænni ráðstefnu í
    Gautaborg 2006
  • Stjórnmál verða að vera skapandi. Ég hef velt því
    fyrir mér afhverju svo margir hafa hætt í
    stjórnmálum í miðju kafi og ég held að það stafi
    af því að þeir gefast upp á leiðindunum. Ég hitti
    stundum ungt fólk sem hefur hætt og það segist
    ekki hafa fengið að vera með í að ákveða neitt,
    það hafi verið aðrir sem ákváðu allt. Ég hef þá
    stundum spurt hvað það hafi verið sem það vildi
    taka þátt í að ákveða. Ásældist þetta fólk völdin
    í sjálfu sér? Ef þú ert kosin(n) í
    félagsmálanefnd í sveitarfélagi 22 ára, hefurðu
    þá þörf fyrir að breyta reglum um greiðslur á
    fjárhagsaðstoð í hverri viku? Nei, kannski ekki
    en hlutverk fólks þar er að sjá til þess að allir
    fái réttmæta afgreiðslu í kerfinu.

14
Klípa hinna kjörnu fulltrúa
  • Bengt Göransson fyrrv. menningarmálaráðherra Svía
    í erindi á norrænni ráðstefnu í Gautaborg 2006
    frh
  • ...Stjórnmálamenn vilja hafa gaman að því sem
    þeir eru að gera og þeir ættu að fá að hafa það.
    Þeir vilja upplifa að þeir séu eitthvað, þeir
    verða að fá útrás fyrir hégómagirndina mér
    finnst það sjálfum fullkomlega réttmætt. Ef maður
    fer í göngutúr með fjölskyldunni á sunnudegi vill
    maður geta bent á skólabyggingu og sagt að maður
    hafi verið í skólanefndinni sem ákvað að byggja
    akkúrat þennan skóla...Í dag fær maður einhverja
    fjárhagsáætlun í hendur og hefur það hlutverk að
    reyna að skera hana niður, maður er í besta falli
    í einhverju neikvæðu niðurrifshlutverki.

15
Klípa hinna kjörnu fulltrúa
  • Göransson lýsir hér fyrst og fremst þessu breytta
    hlutverki sem fjallað hefur verið um
  • Neikvæð niðurrifsverkefni
  • Verkefnin eru almenn og ekkert handfast
  • Hér veltir Göransson fyrir sér hvort þetta sé
    ekki einmitt skýringin á því afhverju fólk hættir
    í pólitík

16
Á þetta við um Ísland?
  • Hefur þetta verið þróunin á Íslandi?
  • Nýskipan í opinberum rekstri hefur haldið innreið
    sína á sveitarstjórnarstiginu
  • Já, en eflaust mun frekar í stærri
    sveitarfélögunum
  • Hefur hlutverk sveitarstjórnarmannsins þróast
    eins og norrænir fræðimenn telja?
  • Já eflaust, en þá líklega bara í stærri
    sveitarfélögunum

17
Ísland?
  • Hvaða þróun hefur verið í gangi?
  • Virðist vera aukin tilhneiging til að kjörnir
    fulltrúar sækist eftir bæjarstjórastólum (eftir
    ca. 1994)
  • Algengt í dag að flokkar/framboð tilkynni að
    oddvitar séu bæjarstjóraefni
  • Í allra stærstu sveitarfélögunum virðast
    nefndaformenn vera að gera sig meira gildandi
    allavega í fjölmiðlum
  • Fleiri og fleiri virðast af einhverjum ástæðum
    vilja hætta í sveitarstjórnarmálum
  • A.m.k. ef marka má 2 síðustu kosningar
  • Og konur í meiri mæli

18
Ísland
  • Orsakir aukinnar ásóknar í bæjarstjórastólana?
  • Foringjastjórnmál?
  • Aukin áhersla á hlutverk flokksformannanna
    leiðtoganna?
  • Hefur orðið e.k. foringjavæðing á
    sveitarstjórnarstiginu eins og í landsmálunum?
  • Hærri laun bæjarstjóra?
  • Veit ekki...varla orðið nein bylting þar á?
  • Eða hefur þetta orðið af þeim ástæðum sem ég hef
    rakið hér í erindinu?
  • Svar kjörinna fulltrúa við þeirri valdatilfærslu
    sem nýskipan í rekstri hefur haft í för með sér

19
Ísland
  • Af hverju hættu margir í sveitarstjórnum 2006?
  • Of mikil vinna?
  • Er þetta orðin of mikil vinna, sérstaklega í
    stærri sveitarfélögum?
  • Vinna sem samræmist illa öðrum störfum?
  • Konur hætta frekar
  • Of illa launað?
  • Er þessi mikla aukavinna of illa borguð?
  • Eða hefur þetta orðið ef þeim ástæðum sem ég hef
    rakið?
  • Fannst fólki þetta ekki spennandi lítil völd?
  • Fannst fólki þetta hreinlega leiðinlegt?

20
Ísland
  • Má rekja þessa þætti til breytinga vegna NPM?
  • Af hverju skiptir máli að svara spurningunni?
  • Lýðræðið
  • Rekstur sveitarfélaga hefur að mörgu leyti verið
    fyrirtækjavæddur á kostnað lýðræðisins
  • Ef svo er, skiptir þá nokkru máli hvað eða hvort
    við kjósum?

21
Að lokum
  • Vitnum aftur í Göransson
  • Skilvirkni er lykilhugtak í rekstri
  • Sé öll áherslan á hana felur hún í sér einn
    veikleika
  • Höfuðóvinur hennar er FORVITNI
  • Hinn skilvirki hefur alltaf óbeit á þeim
    forvitna, hann tefur fyrir
  • Skilvirknin hefur ekki tíma fyrir spurningar,
    forvitni, efasemdir
  • Þessvegna vinnur hún gegn því að ólíkar
    stefnuáherslur séu settar fram og ræddar
  • Nýskipan í opinberum rekstri hefur ýtt undir
    þetta

22
Að lokum
  • Að þessar breytingar hafa verið raunin í
    sveitarfélögum á Íslandi er a.m.k. að hluta til
    rétt
  • Hvort sveitarstjórnarmenn hafa svarað því með
  • Því að sækja inn í embættiskerfið eða
  • Því að hætta í stjórnmálum
  • ... er eitthvað sem þyrfti þá að rannsaka
  • Hér hef ég aðeins vakið upp spurninguna
Write a Comment
User Comments (0)
About PowerShow.com