8-2 Fiskar bls. 145-149 - PowerPoint PPT Presentation

1 / 75
About This Presentation
Title:

8-2 Fiskar bls. 145-149

Description:

Title: 8-2 Fiskar bls. 145-149 Author: F slumi st Reykjav kur Last modified by: FMR Created Date: 3/15/2002 3:42:28 PM Document presentation format – PowerPoint PPT presentation

Number of Views:78
Avg rating:3.0/5.0
Slides: 76
Provided by: F140
Category:
Tags: bls | fiskar | hopi

less

Transcript and Presenter's Notes

Title: 8-2 Fiskar bls. 145-149


1
(No Transcript)
2
8-1 Einkenni hryggdýra bls. 144-145.
  • Hryggdýr hafa burðarsúlu sem nefnist hryggur.
    Hann ber uppi líkamann og veitir honum ákveðna
    lögun. Einnig verndar hann mænuna.
  • Hryggur er ýmist úr brjóski eða beini og
    skiptist í hryggjarliði.

3
Hryggur úr beini
4
  • Flokkar vankjálkar, brjóskfiskar, beinfiskar,
    froskdýr, skriðdýr, fuglar, spendýr
  • http//www.hi.is/runam/fiskfiles/fiska7-vankjalka
    r.pdf

5
8-2 Fiskar bls. 145-149.
  • Elstu hryggdýr jarðarinnar. Komu fram fyrir um
    540 milljónum ára.
  • Stærstu flokkar brjóskfiskar og beinfiskar.
  • Anda með tálknum enda best fallnir til lífs í
    vatni.
  • Straumlínulaga, sleipir, venjulega þaktir
    hreistri (eða skráp).
  • Hafa ugga til að hreyfa sig með og stjórna
    hreyfingu.
  • Stirtlan og sporður eru sundfæri.
  • Lifa í fersku vatni eða söltu.

6
Þorskur
7
Brjóskfiskar
  • Hafa stoðgrind úr brjóski.
  • Dæmi Háfiskar (hákarlar og háfar) og skötur .
  • Húð flestra brjóskfiska kallast skrápur. Hann er
    ekki slímkenndur eins og roð beinfiska heldur
    hrjúfur vegna örsmárra gadda sem minna á tennur.
  • Margir brjóskfiskar fæða lifandi unga hafa því
    innri frjóvgun.
  • Skötur og fleiri brjóskfiskar verpa eggjum sem
    eru eitt og eitt í hornkenndu hylki
    pétursskipi.
  • Háfiskar hafa hvorki sundmaga né tálknlok og
    verða því að synda stöðugt til að sökkva ekki
  • eða kafna.

8
Skata ásamt egghylki- pétursskipi
9
Brjóskfiskur - hákarl
10
(No Transcript)
11
(No Transcript)
12
(No Transcript)
13
(No Transcript)
14
(No Transcript)
15
8-2 frh. Beinfiskar
  • Beinfiskar skipa stærsta flokk hryggdýra.
    Minnsta kosti 20.000 tegundir. Um 200 teg. lifa
    við Ísland í sjó eða í fersku vatni.
  • Hafa stoðgrind úr beini.
  • Húðin kallast roð, er slímkennd og oftast þakin
    hreistri. Hreistrið er þunnar beinplötur sem
    sitja í húðinni.
  • Rákin er skynfæri sem greinir m.a. titring í
    vatni og hljóð.
  • Sundmagi er notaður til að stjórna eðlisþyngd.
  • Hafa flestir ytri frjóvgun. Fæðing unga þekkist.

16
Beinfiskur - karfi
17
8-3 Froskdýr bls. 150-152.
  • Froskdýr eru hryggdýr, líkjast á unga aldri
    fiskum, lifa þá í vatni og anda með tálknum.
    Skríða síðan flest á land og anda með húð og
    lungum sem fullvaxin dýr.
  • Froskar hafa ytri frjóvgun. Hrygningin fer fram í
    vatni.
  • Lungun eru óþroskuð og fer öndun því einnig fram
    gegnum húð sem þá er háð raka.
  • Þrír helstu hópar eru froskar, salamöndrur og
    körtur.

18
Froskar
  • Froskar klekjast úr eggi og hefja ævina sem
    fótalausar lirfur sem minna á fiskseiði.
    Lirfurnar nefnast halakörtur. Þær hafa langan og
    áberandi sundhala, eru með tálkn og geta andað í
    vatni. Smám saman breytast þær, halinn rýrnar,
    fætur taka að myndast og tálknin hverfa.
    Samtímis þroskast lungu inni í líkamanum og síðan
    skríða dýrin á land. Flestir froskar leggjast í
    dvala yfir kaldasta hluta ársins.

19
Lífsferill froska
20
Froskar
21
(No Transcript)
22
Hver segir að froskar séu alltaf grænir?
23
(No Transcript)
24
Halakarta
25
Salamöndrur
  • Ólíkt froskum eru salamöndrur búklangar og með
    hala alla ævina. Fætur eru einnig styttri
    (afturfæturnir). Salamöndrur eru háðar raka líkt
    og froskar. Þær verpa í vatni og sumar dvelja
    þar allt sitt æviskeið.

26
Salamöndrur
27
8-4 Skriðdýr bls. 152-155.
  • Skriðdýr hafa misheitt blóð, anda með lungum og
    hafa þurra og hreisturkennda húð. Þau verpa
    eggjum sínum á landi og ala unga sína upp þar.
  • Í flokki núlifandi skriðdýra eru slöngur, eðlur,
    skjaldbökur og krókódílar.

28
Skriðdýr
  • Skriðdýr eru ekki háð vatni á sama hátt og
    froskdýrin þar sem þeim er ekki nauðsynlegt að
    dvelja hluta af ævi sinni í vatni.
  • Húð þeirra er vatnsþétt og því eru dýrin ekki háð
    röku umhverfi.
  • Egg skriðdýra eru með leðurkennda skurn sem kemur
    í veg fyrir ofþornun þótt þeim sé verpt á landi.
    Hafa innri frjóvgun sem verður áður en skurnin
    myndast.

29
Slöngur
  • Sumar slöngur hafa eiturkirtla sem fram-leiða
    eitur sem notað er til að lama bráð eða drepa.
    Slöngur hafa einnig mjög næm skynfæri sem
    auðveldar þeim að finna bráð.Tungan er notuð til
    að finna lykt/bragð. Hafa slæma sjón og heyrn.
    Hreisturplötur á kvið hjálpa þeim að liðast
    áfram. Stærstu slöngurnar eru vatnabóa og
    flekkjaspýtan. Þær eru um 10 m á lengd.

30
Snákur
31
(No Transcript)
32
Eðlur
  • Flestar eru smávaxnar. Kameljónið getur skipt
    litum og falist þannig fyrir óvinum sínum, líkir
    eftir litum í umhverfinu. Ef óvinur getur náð
    taki á hala þeirra, losnar hann af en nýr getur
    vaxið í staðinn.

33
(No Transcript)
34
(No Transcript)
35
(No Transcript)
36
(No Transcript)
37
Kameljón
38
Kameljón
39
Skjaldbökur
  • Helsta einkenni þeirra eru þykkar plötur úr hyrni
    sem hylja líkama þeirra og mynda varnarskjöld.
    Skjaldbökur lifa ýmist á landi eða í vatni en
    allar verpa eggjum á landi. Þær eru tannlausar
    og nærast á plöntum eða dýrum. Risaskjaldbökur
    geta orðið allt að 200 ára gamlar.

40
Skjaldbaka
41
Margt smátt gerir eitt stórt!
42
(No Transcript)
43
Krókódílar
  • Krókódílar eru náskyldir risaeðlunum. Þeir eyða
    mestum af tíma sínum í vatni og veiða oft stór
    dýr eins og sebrahesta. Móðir hugsar vel um
    afkvæmi sín og ber þau jafnvel í munninum.

44
Breiðtrýningur
45
Krókódíll
46
8-5 Fuglar bls. 156-161.
  • Fuglar eru fiðruð hryggdýr með jafnheitt blóð og
    verpa eggjum.
  • Egg fugla hafa um sig harða skurn úr kalki.
  • Allur forði ungans rúmast í egginu .
    Loftskipti súrefnis og koltvíoxíðs fer fram
    gegnum skurnina.
  • Til eru um 9000 tegundir fugla sem skiptast í
    fjölmarga ættbálka og ættir. Hér á landi verpa
    70-80 tegundir.

47
Kría
48
8-5 Fuglar framhald
  • Fyrstu fuglarnir lifðu á jörðinni fyrir um 150
    milljónum ára á blómaskeiði risaeðlanna. Þessir
    frumstæðu fuglar nefnast eðlufuglar og báru ýmis
    einkenni skriðdýra s.s. langa rófu og hvassar
    klær.
  • Núlifandi fuglar hafa ein einkenni skriðdýra,
    hreisturkennda húð á fótum.

49
Microraptor gui hlekkur milli flugeðla og fugla
50
Skipting fugla
  • Í Lifandi veröld er fuglum skipt í fimm
    meginhópa spörfugla, sundfugla, vaðfugla,
    ránfugla og ófleyga fugla.

51
1. Spörfuglar
  • Spörfuglar hafa svokallaðan setfót sem hentar vel
    til að grípa um trjágreinar. Snúa þá 3 tær fram
    en ein aftur. Af um 5000 teg. þekkjast hér á
    landi m.a. hrafn, skógar-þröstur og músarrindill

Hrafn
52
2. Sundfuglar
  • Sundfuglar hafa flestir sundfót með fit milli
    tánna sem þeir nota við köfun og sund. Dæmi
    endur, gæsir, máfar, svartfuglar.

Grágæsir
53
Hverra anda er ég?
54
3. Vaðfuglar
  • Vaðfuglar Eru háfættir og vaða í grunnu vatni í
    leit að æti. Dæmi spói, stelkur.

Spói
55
4. Ránfuglar
  • Ránfuglar eru vel fleygir, sjá vel og hafa
    sterkan gogg og sterkar klær. Dæmi haförn,
    fálki, smyrill.

Fálki
56
5. Ófleygir fuglar
  • Ófleygir fuglar hafa flestir sterka hlaupafætur
    og eru fráir á fæti. Dæmi strútur, nandúi og
    emúi.
  • Mörgæsir synda hratt en ganga hægt.

Emúi
57
Í hvaða hópi eigum við heima?
58
(No Transcript)
59
Ófleygur fugl - Strútur
60
Aðlögun fugla að flugi bls.159.
  • Sterk og létt bein sem eru samt hol að innan.
  • Mismunandi fiður. Sumar eru fíngerðar dúnfjaðrir
    en aðrar lengri með stinnum fjöðurstaf og nefnast
    þakfjaðrir. Handflugfjaðrir í vængjum eru
    lengstar en þær skapa stóran hluta af lyftikrafti
    flugsins. Í
  • stéli eru líka langar fjaðrir stélfjaðrir
    til að stýra á flugi.
  • Sterkur bringuvöðvi til að knýja vængina.
  • Fullkomin lungu sem taka upp mikið af súrefni sem
    er nauðsynlegt vegna mikillar brennslu á flugi.

61
(No Transcript)
62
Atferli fugla bls. 159-161.
  • Fuglar helga sér óðal með ýmsum hætti m.a. með
    söng og hljóðum. (Óðal er tiltekið svæði sem dýr
    helga sér og ætla sér og sínum til afnota.)
  • Hljóð eru notuð til að laða til sín maka og vara
    við hættum.
  • Sumir karlfuglar nota skæra liti og dans til að
    laða til sín maka.
  • Sumir karlfuglar gera glæsileg hreiður til að
    lokka til sín maka.

63
Far fugla bls. 161.
  • Far er það nefnt þegar fuglar skipta um búsvæði
    árstíðabundið. Margir fuglar fara í langar
    ferðir milli varpstöðva og vetrar-stöðva. Dæmi
    krían sem hefur vetursetu á suðurhveli jarðar en
    verpir á norðurslóðum.

64
8-6 Spendýr bls. 162-169.
  • Spendýr eru hærð á einhverju stigi ævinnar, eru
    með jafnheitt blóð og mjólkurkirtla.
  • Fyrstu spendýrin komu fram fyrir um 200 milljónum
    ára. Þróuðust af skriðdýrum.
  • Til eru um 4500 tegundir sem skiptast í marga
    ættbálka.
  • Spendýr anda öll með lungum, hafa tvískipt
    fjögurra hólfa hjarta.
  • Taugakerfi er háþróað og heili fullkominn.
  • Frjóvgun fer fram innvortis. Spendýrum er skipt
    eftir fósturþroska í nefdýr, pokadýr og
    fylgjudýr.

65
Nefdýr
  • Eru frumstæðustu spendýrin.
  • Verpa eggjum en frjóvgun er innvortis.
  • Hafa enga spena, bara mjólkurop.
  • Þrjár tegundir til allar í Ástralíu.
  • -Breiðnefur lifir í ám og vötnum. Er með
    sundfit, vatnsheldan feld og gogg sem minnir á
    andargogg.
  • -Mjónefur -tvær teg. Með langa brodda á baki og
    mjóan gogg.

66
Breiðnefur
67
Mjónefur
68
Pokadýr
  • Fæða vanþroska unga (fóstur) sem skríða í poka á
    kviði móður. Sjúga sig fasta á spena þar til
    þroska spendýrsunga er náð.
  • Kengúran er þekktust pokadýra. Önnur eru
    kóalabirnir og pokarottur. Kengúrur og
    kóalabirnir lifa í Ástralíu en pokarottur lifa
    bæði þar og í Ameríku.

69
Kengúra
70
Kóala björn
71
Fylgjudýr bls. 164-169.
  • Flestar tegundir spendýra eru fylgjudýr.
  • Ungi fylgjudýra þroskast í líkama móður og fær
    súrefni og næringu um fylgjuna (legkökuna).
  • Fylgjudýr skiptast í 15 ættbálka.

72
Nokkrir ættbálkar fylgjudýra 1
  • Skordýraætur frumstæð spendýr sem lifa á
    skordýrum t.d. moldvörpur, broddgeltir og
    dversnjáldran sem er minnsta spendýrið.
  • Leðurblökur einu fleygu spendýrin. Dæmi
    vampíra og flugrefur.
  • Rándýr eru sérlega löguð til veiða, hafa
    hvassar tennur og klær og öfluga vöðva. Dæmi
    kettir, hundar, ljón, selir, birnir.

73
Ættbálkar fylgjudýra 2
  • Tannleysingjar Dæmi letidýr, maura-ætur og
    beltisdýr.
  • Fílar einkenni þeirra er raninn. Tvær tegundir,
    afríkufíll og asíufíll.
  • Hófdýr eru grasbítar með hófa. Dæmi hestur og
    nashyrningur.
  • Klaufdýr eru grasbítar með klaufir. Dæmi
    nautgripir, gíraffi, svín.

74
Ættbálkar fylgjudýra 3
  • Nagdýr stærsti ættbálkur spendýra 2000 teg.
    Hafa nagtennur sem vaxa alla ævina.
  • Dæmi mýs og rottur.
  • Nartarar náskyldir nagdýrum. Dæmi kanínur,
    hérar, blísturshérar og múshérar.
  • Hvalir sjávardýr, stærstu dýr jarðar. Skiptast
    í tannhvali og skíðishvali. Dæmi steypireyður
    stærsta dýr jarðar.

75
Ættbálkar fylgjudýra 4
  • Sækýr eru jurtaætur sem lifa í grunnum sjó og
    eru skyldar fílum.
  • Prímatar hafa vel þroskaðan heila, grip á
    höndum og fótum (nema menn), augun sitja framan á
    höfðinu. Til prímata teljast apar og menn.
Write a Comment
User Comments (0)
About PowerShow.com