3. Kafli: Frumur - PowerPoint PPT Presentation

1 / 24
About This Presentation
Title:

3. Kafli: Frumur

Description:

3. Kafli: Frumur L ff ra og l fe lisfr i 103 Gu r n Narfad ttir Frumur Fruma er minnsta lifandi eining l kamans Allar frumur eru komnar t fr rum ... – PowerPoint PPT presentation

Number of Views:68
Avg rating:3.0/5.0
Slides: 25
Provided by: kenna151
Category:

less

Transcript and Presenter's Notes

Title: 3. Kafli: Frumur


1
3. Kafli Frumur
  • Líffæra og lífeðlisfræði 103Guðrún Narfadóttir

2
Frumur
  • Fruma er minnsta lifandi eining líkamans
  • Allar frumur eru komnar út frá öðrum frumum
  • Frumulíffræði (cytologia) fæst við rannsóknir á
    frumum
  • Dæmigerðri frumu má skipta í þrjá hluta
  • Frumuhimnu
  • aðskilur innra umhverfi frumunnar frá því ytra
  • stjórnar ferð efna og miðlar boðum inn í frumu og
    út
  • tekur á móti boðum
  • Umfrymi
  • nær frá frumuhimnu til kjarna
  • skiptist í frumuvökva (cytosol) og frumulíffæri
  • Kjarna
  • aðsetur litninga
  • litningar bera gen sem stjórna byggingu frumunnar
    og starfsemi

3
Bygging frumuhimnunnar
  • Frumuhimnan er gerð úr jöfnum hlutföllum lípíða
    (fituefna) og próteina
  • Lípíð frumuhimnunnar
  • fosfólípíð sameindir raðast upp í tvöfalt lag og
    snúa fitusýrurnar inn að miðju
  • Miðja himnunnar er því vatnsfælin
  • kólesterólsameindir styrkja himnuna
  • glýkólípíð (lípíð með sykrukeðjum) á ytra
    yfirborði
  • Prótein himnunnar
  • ná ýmist í gegnum himnuna eða eru á yfirborði
  • Sum þeirra eru tengd sykrukeðjum (glýkóprótein)
  • sjá um margvíslega starfsemi hennar svo sem
  • jónagöng, jónadælur, efnaferjur, viðtakar, ensím,
    mótefnavakar

4
glykóprótein
Tvöfalt lípíð- lag
Prótein sem ná í gegnum himnuna
fosfólípíð
Yfirborðsprótein
kólesteról
5
Frumuhimnan er valgegndræp
  • Flutningur efna inn í frumu og út er nauðsynlegur
    fyrir lífsstarfsemi hennar
  • Efni komast misvel í gegnum himnuna, því er sagt
    að himnan sé valgegndræp (hálfgegndræp)
  • Vatnssameindir og fituleysanleg efni smjúga
    auðveldlega í gegnum himnuna milli
    fosfólípíðsameindanna
  • Jónir og stórar óhlaðnar agnir komast hins vegar
    ekki hjálparlaust í gegnum fitulagið
  • Vatnsleysanlegar sameindir komast í gegnum
    himnuna með aðstoð próteina sem mynda jónagöng,
    jónadælur eða ferjuprótein
  • Stórar sameindir eins og prótein komast ekki í
    gegnum himnuna nema í blöðrum

6
Flutningur efna yfir himnur
  • Vökvi innan frumunnar kallast innanfrumuvökvi
    (intracellular fluid)
  • Vökvi utan frumunnar kallast utanfrumuvökvi
    (extracellular fluid)
  • Vökvi í örlitlum bilum milli frumna kallast
    millifrumuvökvi (interstitial fluid)
  • Efni uppleyst í vökva kallast lausn (solute)
  • Vökvi sem leysir upp efni kallast leysir
    (solvent)
  • Líkamsvökvar eru þunnar lausnir og leysirinn er
    vatn
  • Vegna valgegndræpi himnunnar er styrkur einstakra
    efna sitt hvoru megin við himnuna ekki sá sami,
    en heildarefnisstyrkur er þó oftast sá sami

7
Er flutningurinn orkukræfur eða ekki?
  • Flutningsleiðir sem ekki krefjast orku
  • Flæði (diffusion)
  • Osmósa (osmosis)
  • Orkukræfar flutningsleiðir
  • Virkur flutningur
  • Flutningur með blöðrum
  • Innfrymun (endocytosis)
  • Útfrymun (exocytosis)

8
Flæði (diffusion)
  • Flæði er flutningur efnisagna frá svæði með meiri
    efnisstyrk yfir á svæði með minni efnisstyrk
  • Eftir flæði í ákveðinn tíma næst jafnvægi og
    styrkmunurinn hverfur
  • Flæði er ekki orkukræft
  • Hraði flæðis er því meiri sem
  • styrkmunur efnis sitt hvoru megin himnu er meiri
  • hitastigið er hærra
  • himnuyfirborðið er meira
  • efnisagnirnar eru smærri
  • Besta dæmið um flæði er flutningur O2 og CO2 yfir
    himnur í lungum og vefjum

9
Mismunandi gerðir flæðis
  • Einfalt flæði (simple diffusion)
  • Sameind flæðir milli fitusameinda himnunnar
  • Dæmi O2 og CO2
  • Flæði með próteinum (faciliated diffusion)
  • um jónagöng
  • Himnuprótein mynda göng sem hleypa ákveðnum jónum
    í gegn.
  • Dæmi Na, K, og Ca2
  • með ferjupróteinum
  • Sameind binst próteini sem ferjar hana í gegnum
    himnuna
  • Flæðishraðinn er háður fjölda ferjupróteina
  • Dæmi glúkósi flæðir inn í vöðvafrumur bundinn
    ferjupróteinum. Insúlín virkjar ferjupróteinin

10
Flæði um jóna- göng
Flæði með ferju- próteini
Flæði milli fitu- sameinda
Virkur flutingur
Styrk- fallandi
Flutningur sem ekki þarfnast orku
Virkur flutningur
11
Osmósa
  • Osmósa er flæði vatns um valgegndræpa himnu frá
    svæði með minni styrk uppleystra efna yfir á
    svæði með meiri styrk uppleystra efna
  • vatnið flæðir úr meiri vatnsstyrk í minni
  • Uppleyst efni sem ekki komast í gegnum himnu
    skapa osmótískan þrýsting í lausninni
  • Uppleystu efnin virkar eins og svampar sem draga
    í sig vatn
  • Ef osmótískur þrýstingur er ekki sá sami sitt
    hvoru megin við himnu, streymir vatn í gegnum
    himnuna þar til jafnvægi er náð

12
Jafnseltið, yfirseltið, undirseltið
  • Jafnseltin lausn (ísótónísk)
  • Hefur sama efnisstyrk og frumuvökvi
  • Undirseltin lausn (hypótónísk)
  • Hefur minni efnisstyrk en frumuvökvi
  • Yfirseltin lausn (hypertónísk)
  • Hefur meiri efnisstyrk en frumuvökvi

13
Virkur flutningur (active transport)
  • Við virkan flutning fer efni frá svæði með minni
    efnisstyrk yfir á svæði með meiri efnisstyrk
  • Orkan sem notuð er tilkomin vegna sundrunar á ATP
  • (ATP ? ADP Pi orka)
  • Gott dæmi um virkan flutning er natríum- kalíum
    dælan
  • þrem Na jónum er dælt út úr frumu fyrir hverjar
    tvær K jónir sem dælt er inn

14
Við virkan flutning fer efni úr minni efnisstyrk
í meiri. Um 40 af því ATP sem fruman notar fer í
þessa starfsemi
styrkfallandi
15
Blöðruflutningur
  • Við innfrymun (endocytosis) er ögn utan frumu
    snöruð inn í frumuna með frumuhimnunni
  • Agnaát (phagocytosis) - stundað af hvítum
    blóðkornum
  • Frumudrykkja (pinocytosis / bulk-phase
    endocytosis) dropi úr utanfrumuvökva er tekinn
    inn í blöðru
  • Við útfrymun (exocytosis) er framleiðsla frumu
    eða úrgangur losaður út með blöðru sem sameinast
    frumuhimnunni

16
Umfrymið (cytoplasma)
  • Umfrymið innifelur alla frumuhluta frá frumuhimnu
    inn að kjarna
  • Umfrymi skiptist í
  • frumuvökva (cytosol) og
  • frumulíffæri (organelles)
  • Frumuvökvinn er úr vatni með uppleystum jónum,
    glúkósa, amínósýrum, fitusýrum próteinum,
    lípíðum, ATP og úrgangsefnum
  • Í frumuvökvanum gerast öll efnahvörf frumunnar

17
Frumulíffæri
  • Frumulíffæri hafa sérstaka lögun og skilgreinda
    starfsemi
  • Frumugrind (cytoskeleton) úr próteinþráðum
  • Örþræðir, örpíplur og milliþræðir
  • Mynda stoðgrind og gegna hlutverki við hreyfingar
  • Geislaskaut (centrosome) og tvö deilikorn
    (centrioles)
  • Mikilvæg við frumuskiptingar og við myndun
    bifhára og svipa
  • Bifhár (cilia)
  • Koma bylgjuhreyfingum af stað í umhverfi frumna
  • Svipur (flagella)
  • Flytja frumu úr stað (svipur eru aðeins hjá
    sáðfrumum)

18
Frumulíffæri frh.
  • Netkorn (ribosome)
  • Úr RNA og próteinum
  • Aðsetur próteinmyndunar
  • Frymisnet (endoplasmic reticulum)
  • Himnukerfi með flötum sekkjum
  • Kornótt / hrjúft frymisnet (með netkornum) sér um
    próteinmyndun
  • Slétt frymisnet sér um lípíðmyndun, afeitrar efni
    í lifur og geymir kalsíumjóni í vöðvafrumum
  • Golgi kerfi / flétta (Golgi komplex)
  • Fullvinnur afurðir frymisnets og pakkar þeim til
    útflutnings
  • Myndar leysikorn

19
Frumulíffæri frh.
  • Leysikorn (lysosomes)
  • Blöðrur fullar af meltingarensímum
  • Eyða ónýtum frumuhlutum eða allri frumunni
  • Peroxíðkorn (peroxisomes)
  • Innihalda ensím sem oxa ýmis lífræn efni og
    eiturefni
  • Við oxunina myndast vetnis peroxíð (H2O2) sem er
    brotið niður af ensímum í peroxíðkornunum
  • Hvatberar (mitochondria)
  • Sporöskjulaga líffæri með tvöfalt himnukerfi
  • Aðsetur öndunarefnaskipta (bruna)

20
Kjarninn (nucleus)
  • Umlukinn tvöföldu kjarnahýði (nuclear envelope)
    með götum
  • Flestar frumur hafa einn kjarna
  • Í kjarnanum er
  • Kjarnakorn (nucleolus)
  • myndar netkorn
  • Litningar (chromosomes)
  • 23 pör í hverri líkamsfrumu (46 litningar)
  • Úr DNA og próteinum
  • Aðsetur genanna (erfðavísanna)

21
Frumuskiptingar
  • Frumur líkamans
  • tvílitna líkamsfrumur (somatic cells)
  • einlitna kynfrumur (gametes)
  • Frumuskipting sem fjölgar líkamsfrumum kallast
    líkamsfrumuskipting (sómatísk frumuskipting)
  • Vöxtur og viðhald vefja er vegna
    líkamsfrumuskiptinga
  • Líkamsfrumuskipting innifelur
  • kjarnaskiptingu (mítósu) og
  • skiptingu umfrymis (cytokinesis)
  • Frumuskipting sem fækkar litningum við myndun
    kynfrumna kallast rýriskipting (meiósa)
  • Við meiósu myndast einlitna kynfrumur úr tvílitna
    kynmóðurfrumum

22
Frumuhringur (cell cycle)
  • Fruma sem ekki er að skipta sér er í interfasa
  • Fyrir mítósu (í interfasa) verður afritun á öllu
    erfðaefninu (litningar tvöfaldast)
  • Í mítósu aðskiljast litningamengin í tvo aðskilda
    kjarna
  • Ferli mítósu skiptist í prófasa, metafasa,
    anafasa og telófasa
  • Skipting umfrymis hefst í anafasa og lýkur í
    telófasa
  • Fruman klofnar og útkoman er tvær dótturfrumur
    sem eru nákvæmlega eins og móðurfruman

23
Meiósa
Mítósa
24
Í líkamanum eru um 200 mismunandi frumugerðir
Write a Comment
User Comments (0)
About PowerShow.com