Kraftur og hreyfing - PowerPoint PPT Presentation

1 / 29
About This Presentation
Title:

Kraftur og hreyfing

Description:

Title: Gl sur r Kraftur og Hreyfing Author: Gar ask li Last modified by: einarh Created Date: 4/22/2003 12:58:22 PM Document presentation format – PowerPoint PPT presentation

Number of Views:62
Avg rating:3.0/5.0
Slides: 30
Provided by: Gara157
Category:
Tags: hana | hreyfing | kraftur

less

Transcript and Presenter's Notes

Title: Kraftur og hreyfing


1
Kraftur og hreyfing
  • 2. kafli

2
2-1 Kraftur
  • Kraftur verkar á hlut og veitir honum orku þannig
    að hann tekur að hreyfast, hættir að hreyfast eða
    breytir hraða sínum.
  • Kraftur er mældur í njútonum (N). Njúton er
    þ.a.l. einingin fyrir kraft í SI kerfinu.
  • Eitt njúton er sá kraftur sem þarf til þess að
    gefa hlut með massann 1 kg. hröðunina 1 m/sek2

3
Dæmi
  • Hversu mikinn kraft þurfum við til að ýta af stað
    sleða sem er 10 kg. Við ætlum að breyta hraða
    hans úr 0 m/sek í 5 m/sek á einni sekúndu.
  • Mundu Kraftur er massi hlutar margfaldaður með
    hraðabreytingu á tíma
  • Við þurfum því að margfalda massann með
    hraðabreytingunni, 10kg. x 5 m/sek 50N

4
Prófaðu sjálf/ur
  • Prófaðu sjálf/ur
  • Hvað þarftu mikinn kraft til að ýta þér af stað á
    skíðum, ef þú ert 55 kg. og þú ætlar að fara úr
    kyrrstöðu (0 m/sek) í 30m/sek á einni sekúndu?
  • Svar________________________________

5
Gormvog
  • Gormvog er notuð til að mæla kraft.
  • Kraftur er mældur í njútonum
  • (Newton á ensku, eftir enska eðlisfræðingnum
    Isaac Newton).

6
Munur á massa og þyngd
  • Massi er mælikvarði á efnismagn og er mældur í
    kg.
  • Þyngd er mælikvarði á það hversu mikill
    þyngdarkraftur verkar á hlut. Þar sem þyngd er
    kraftur er hún mæld í njútonum.
  • Þyngdarkrafturinn er 9.8 njúton á jörðinni og
    margföldum við því massa okkar með
    þyngdarkraftinum og fáum út þyngd í njútonum.
  • Dæmi Hver er þyngd 80 kg. manns í njútonum?
  • 80 kg x 9,8N 784 N

7
2-1 Kraftur
  • Núningur
  • Er kraftur sem hamlar gegn hreyfingu hlutar, þ.e.
    veldur því að hlutur á hreyfingu hægir á sér og
    stöðvast
  • 3 megin gerðir núnings
  • Renninúningur (milli 2 fastra flata)
  • Veltinúningur (á mótum veltandi hlutar og
    undirstöðu)
  • Straummótstaða (milli hlutar og straumefnis, t.d.
    báts í vatni eða flugvélar í lofti)

8
2-2 Kraftar í straumefnum
  • Straumefni
  • Vökvar
  • Lofttegundir
  • Straumefni skapa krafta
  • Núning (straummótstaðan)
  • Þrýsting (kraftur sem verkar á ákveðinn flöt
    Newton á fersentimetra, þ.e. N/cm2)
  • Flotkraft (lyftikraftur sem verkar á hlut í
    straumefni)

9
Flotkraftur

Lítill kraftur verkar á efra borð hlutarins

Kraftur (þrýstingur) eykst með dýpi
Mikill kraftur verkar á neðra borð hlutarins og
ýtir honum upp
10
Flotkraftur 2.
  • Þegar hlutur er á kafi í vatni verkar flotkraftur
    þannig að hann ýtir hlutnum upp, á móti
    þyngdarkraftinum sem dregur hlutinn niður
  • Stærð flotkraftsins ákveður hvort hlutur flýtur
    eða sekkurflotkraftur minni en þyngd hlutarins
    ? hluturinn sekkurflotkraftur meiri en þyngd
    hlutarins ? hluturinn flýtur

11
Lögmál Arkímedesar
  • Flotkraftur á hlut
  • Þyngd þess vökva sem hluturinn ryður frá sér
  • Hlutur flýtur í vökva ef eðlismassi hlutarins er
    minni en eðlismassi vökvans

12
Lögmál Arkímedesar frh.
  • Eðlismassi er hlutfallið milli massa efnis og
    rúmmáls þess.
  • Eðlismassi Massi

    Rúmmál
  • Hægt er að tengja lögmál Arkimedesar við hugtakið
    um eðlismassa. Hlutur flýtur í vökva ef
    eðlismassi hlutarins er minni en eðlismassi
    vökvans.

13
Vökvaknúin tæki
  • Þrýstingur sem verkar á einum stað í vökva
    dreifist jafnt um allan vökvann
  • Vökvahemlar og vökvalyftarar byggjast á því að
    þrýstingur verkar jafnt til allra hliða, Þess
    vegna getur kraftur sem verkar í lítinn flöt
    vökvans valdið gríðarmiklum krafti á margfalt
    stærri flöt.

Þrýstingur
14
Lögmál Bernoullis
  • 4 ólíkir kraftar verka á flugvél á flugi

Þyngd
Viðnám
Knýr
Lyftikraftur
15
Lögmál Bernoullis
  • Loftið fer hraðar, minni þrýstingur
  • Þrýstingur í vökva/lofti á hreyfingu er minni en
    í vökva/lofti sem hreyfist ekki. Því hraðar sem
    vökvi/loft streymir því minni verður
    þrýstingurinn sem hann skapar

16
Lögmál Bernoullis
  • Lyftikraftur (þrýstikraftur)
  • Krafturinn sem verkar á flugvélavængi og lyftir
    vélunum upp
  • Þegar flugvél flýgur í jafnri hæð er
    þrýstikrafturinn jafn þyngd flugvélarinnar
    (kraftinum sem togar vélina niður til jarðar)
  • Knýr (spyrna)
  • Kraftur sem verkar á flugvél í lofti og spyrnir
    henni áfram
  • Viðnám (loftmótstaða)
  • Kraftur sem verkar í andstæða átt við knýinn og
    dregur því úr hraða flugvélar

17
2-3Vinna, orka og afl
  • Vinna er notað yfir það þegar kraftur færir hlut
    úr stað (hluturinn er dreginn, honum ýtt eða
    kastað)
  • Vinna kraftur x vegalengd
  • Mælieiningin fyrir vinnu hefur 2 nöfn
  • Newtonmetri (skammstafað Nm)
  • Júl (Joule) (skammstafað J)
  • 1 Nm 1 J

18
Afl
  • Afl er mælikvarði á hversu hratt vinna er unnin,
    það er, hversu mikil vinna fer fram á tiltekna
    tímaeiningu
  • Afl vinna orka tími tími
  • Afl kraftur x vegalengd tími
  • Mælieiningin fyrir afl er watt (W).1 W 1 Júl á
    sekúndu 1 J/sek
  • Dæmi 60 W ljósapera skilar vinnu sem nemur 60
    júlum á sekúndu

19
Spreytið ykkur
  • Helga ætlar að færa kennaraborðið um 5 metra. Það
    tekur hana nákvæmlega 10 sekúndur og hún þarf að
    nota 100N kraft til þess.
  • Hversu mikið afl notar hún?
  • Svar_______________________________

20
2-4 Vélar
  • Vél er tæki sem léttir mönnum vinnu með því að
    breyta stærð eða stefnu þess krafts sem beitt er
    við vinnuna
  • Tvenns konar kraftar koma við sögu í vélum
  • Inntakskraftur sá kraftur sem beitt er á vélina
  • Skilakraftur sá kraftur sem vélin skilar frá sér

21
Vélar 2.
  • Kraftahlutfall
  • skilakraftur inntakskraftur
  • segir til um hversu oft vél margfaldar
    inntakskraftinn

inntakskraftur
skilakraftur
22
Vélar 3.
  • Vélar margfalda kraftinn, en sú vinna sem vél
    skilar verður aldrei meiri en sú vinna sem beitt
    er á vélina
  • Nýtni er samanburður á inntaksvinnu og
    úttaksvinnu
  • Nýtni er aldrei meiri en 100 Núningur kemur
    alltaf í veg fyrir það að nýtni vélar sé 100 -
    nýtnin er alltaf minni
  • Hagkvæmustu vélarnar eru þær sem hafa besta nýtni
    og því er mikilvægt að minnka núning með
    smurningsefnum

23
Vélar 4.
  • Einfaldar vélar framkvæma vinnu með einni
    hreyfingu.
  • Samsettar vélar eru gerðar úr tveimur eða fleiri
    einföldum vélum

24
Einfaldar vélar 1.
  • Vogarstöng
  • Stöng sem snýst um fastan punkt (vogarásinn)

skilakraftur
vogarstöng
inntakskraftur
25
Einfaldar vélar 2.
  • Trissa (talía)
  • Band sem brugðið er um hjól
  • Verkar á tvennan hátt
  • Getur breytt stefnu krafts (föst trissa)
  • Getur breytt stærð krafts (hreyfanleg trissa)

Föst trissa
26
Einfaldar vélar 3.
  • Hjól og ás
  • Hjól er kringlóttur hlutur sem snýst um minni
    kringlóttan hlut, ásinn
  • Ef krafti er beitt á hjólið, margfaldast hann við
    ásinn

inntaks-kraftur
skilakraftur
27
Einfaldar vélar 4.
  • Skáborð
  • Skáborð er beinn, hallandi flötur
  • Notaður til að koma hlutum upp á hærra svæði
  • Hluturinn fer lengri leið, en þá þarf líka minni
    inntakskraft til að koma honum upp

Maðurinn þarf að koma steininum efst í
rennibrautina. Á hann að lyfta steininum beint
upp? Eða á hann að ýta honum upp rennuna?
28
Einfaldar vélar 5.
  • Fleygur
  • Tveir sléttir fletir sem mætast í hvössu horni
    egginni
  • Þegar krafti er beitt á fleyginn, verður
    skilakrafturinn við eggina mikill
  • Við brýnum hnífa til að þynna eggina og stækka
    þar með kraftahlutfallið þá þarf minni
    inntakskraft til að fá mikinn skilakraft

29
Einfaldar vélar 6.
  • Skrúfa
  • Skrúfa er í raun skáborð sem búið er að vefja um
    sívalning
  • Skrúfa fer því í raun langa vegalengd til að auka
    kraftahlutfallið. Það þarf mikinn kraft til að
    koma skrúfunni á kaf í spýtu, en með því að
    notfæra sér skáborðið getum við gert þetta með
    handafli!
Write a Comment
User Comments (0)
About PowerShow.com