Skynf - PowerPoint PPT Presentation

About This Presentation
Title:

Skynf

Description:

Skynf rin Margr t Kristinsd ttir Skynjun A eins d r me roska taugakerfi hafa s rh f ar skynfrumur en r eru nemar sem breyta reyti taugabo og ... – PowerPoint PPT presentation

Number of Views:72
Avg rating:3.0/5.0
Slides: 10
Provided by: Margr52
Category:
Tags: hafa | skynf

less

Transcript and Presenter's Notes

Title: Skynf


1
Skynfærin
  • Margrét Kristinsdóttir

2
Skynjun
  • Aðeins dýr með þroskað taugakerfi hafa sérhæfðar
    skynfrumur en þær eru nemar sem breyta áreyti í
    taugaboð og flytja til miðtaugakerfisins
  • Sumar eru ummyndaðar eins og stafir og keilur í
    auga og sársaukaskynfrumur í húð og oft eru
    margar saman sem mynda sérhæfð skynfæri eins og
    auga og eyra

3
Birtuskyn
  • Margar lífverur skynja ljósþ.e. rafsegulbylgjur
    með nokkur hundruð nanometra bylgjulengd
  • Sumir einfrumungar hafa augndíl sem virðist
    greina hvaðan ljósið kemur
  • Mörg augnlaus vefdýr eru næm á birtu, t.d. hafa
    ánamaðkar ljósnæmar frumur dreifðar um húð
    bakhlutans

4
Linsulaus augu
  • Hafa t.d. iðormar, þeir sjá ekki mynd af
    umhverfinu en greina hvaðan birtan kemur
  • Skordýr hafa samsett augu, gerð úr mörgum smáugum
    með linsum en sjónsvið þeirra er þröngt. Þau geta
    ekki skerpt myndina eftir fjarlægð fyrirmyndar en
    augu þeirra eru næm á hreyfingu

5
Augu manna
  • Utan um augað er augnhvíta en fremsti hluti
    hennar er glæra (hornhimna)
  • Innan við er augasteinn (linsa) festur með
    brávöðvum við rákótta vöðva sem breyta lögun
    steinsins eftir fjarlægð þess sem horft er á.
  • Vökvaspenna innan í auganu heldur brávöðvum í
    sundur, nema vöðvinn sé dreginn saman

6
Sjónnæmar frumur í sjónu (retina)
  • Stafir eru um 120 milljónir í hvoru auga
  • Eru til hliðanna og skynja svart/hvítt
  • Mynda svokallaða rökkursjón
  • Nota A-vítamín til að endurhlaða sjónpurpurann
  • Keilur eru um 6 milljónir í hvoru auga
  • Liggja miðlægt um augnbotninn
  • Greina liti en eru óstarfhæfar þegar dregur úr
    birtu.

7
Litir-bylgjulengd í nanometrum(1milljarðsti úr
metra)í sýnilegu ljósi
Bylgjul. Í nm Litir
700 rautt
650 appelsínugult
600 gult
550 grænt
500 blátt
400 fjólublátt
8
Ljósbrot augans
  • Glæran á mestan þátt í ljósbrotinu með því að
    varpa á sjónuna mynd á hvolfi
  • Augasteinninn á líka þátt í ljósbrotinu en
    hlutverk hans er þó einkum að breyta gangi geisla
    um augað eftir því hvort hlutur er
    nálægur(hvelfdur steinn) eða fjarlægur (flatur
    steinn)

9
Lithimnan
  • Er með sléttum vöðvaþráðum í tveim lögum, í hring
    eins og geislar eða sem pílárar í hjóli
  • Ljósopið (sjáaldrið) er í miðjunni
  • Þrenging ljósopsins---hringlagið dregst saman
  • Víkkun ljósopsins---samdráttur geislaþráðanna
Write a Comment
User Comments (0)
About PowerShow.com