Almenn s - PowerPoint PPT Presentation

About This Presentation
Title:

Almenn s

Description:

Title: Almenn s lfr i hugur, heili og h tterni Author: FA Last modified by: FA Created Date: 3/11/2003 8:38:06 PM Document presentation format – PowerPoint PPT presentation

Number of Views:182
Avg rating:3.0/5.0
Slides: 43
Provided by: Fa89
Category:
Tags: almenn | tolman

less

Transcript and Presenter's Notes

Title: Almenn s


1
Almenn sálfræðihugur, heili og hátterni
  • Höf Aldís Guðmundsdóttir
  • Jörgen Pind
  • Kennari Þórður Sigurðsson

2
4. KafliNám
Nám er rétt eins og minni lykilhugtak í sálfræði.
Nám tengist rannsóknum sem falla undir
atferlisstefnuna ekki ólíkt því hlutverki sem
minnisrannsóknir gegna í hugrænni sálfræði.
Í þessum kafla er fjallað um grunnhugtök
námssálarfræðinnar
Nám er ...
tiltölulega varanleg breytingsem leiðir af
þjálfun (eða fyrri reynslu)vitundarbreytingmarka
r spor á taugakerfið
3
Hornsteinar atferlisstefnu
Í stuttu máli byggði hugmyndafræði
atferilsstefnunnar á eftirfarandi atriðum
Öll hegðun er lærðUmhverfið er allsráðandi um
mótun hegðunarSálfræðingum er einlægast að finna
þau lögmál sem hegðun lýturÞar sem atferli
skapast alfarið af umhverfisáhrifum er frjáls
vilji tálsýn einSálfræðingar eiga að einbeita
sér að rannsóknum á sýnilegu/áþreifanlegu
atferli.Stefna ber að því að gera sálfræðina að
raunvísindagreinEinungis skal beita vísindalegum
rannsóknaraðferðum í sálfræði
Frumkvöðlar atferlisstefnunnar voru Pavlov,
Watson, Thorndike og Skinner
4
Tengslanám
  • Tengslanám (associative learning)
  • myndun nýrra tengsla eða sambands milli
  • atburða í umhverfinu.
  • Tvær tegundir tengslanáms
  • Viðbragðs- eða Pavlovsk skilyrðing.
  • Virk skilyrðing

Tengslahyggjan er undirstaða hugtengslakenningar
Aristótelesar og reynsluhyggjunnar.
5
Pavlov skilgreindi fyrstur viðbragðsskilyrðingu
Pavlov hafði veitt því eftirtekt í rannsóknum
sínum á meltingarstarfsemi hunda að þeir tóku oft
að slefa áður en þeir byrjuðu að éta. Oft nægði
þeim að sjá matinn eða aðstoðarmann Pavlovs
Pavlov velti fyrir sér eftirfarandi Það er óærð,
ásköpuð svörun hjá hundi að slefa þegar kjötbita
er stungið upp í hann. Það er hundinum ekki
áskapað að slefa þegar hann sér kjöt eða
gæslumann. Hér hlaut nám að koma til. Hundurinn
tengdi greinilega kjötið og gæslumanninn
athöfninni að éta.
Pavlov hagaði tilraunum sínum á eftirfarandi
hátt Hundi var komið fyrir í sérstökum búnaði.
Í kjálka hans er leidd slanga sem tengd er
sérstöku tæki sem mælir slefrennsli hundsins.
Gefið er hljóðmerki, t.d. bjölluhringing, og
skömmu síðar er hundinum fært æti.Þetta er
endurtekið nokkrum sinnum og kemur þá að því að
hundurinn fer að slefa þegar bjöllunni er hringt,
þ.e. áður en ætið birtist. Hér er búið að tengja
áður hlutlaust áreiti (hljóðmerki) við æti.
6
Viðbragðsskilyrðing
  • Lota Sérhver pörun á skilyrta áreitinu og
    óskilyrta áreitinu kallast lota
  • Festingarskeið Tíminn sem lífveran er að læra
    tengslin á milli áreitanna tveggja kallast
    festingarskeið
  • Slokknun Ef hið skilyrta atferli er ekki
    styrkt, þ.e. ef óskilyrta áreitinu er sleppt
    aftur og aftur, þá minnkar skilyrta svörunin
    smátt og smátt.
  • Sjálfkvæm endurheimt Slokknun er ekki gleymska
    eins og ætla mætti við fyrstu sýn. Þetta má marka
    af því að sé gert hlé á tilraun eftir að slokknun
    lýkur (til dæmis yfir nótt) þá verður styrkur
    svörunar þegar tilraunir hefjast aftur meiri en
    hann var fyrir hlé. Þetta kallast sjálfkvæm
    endurheimt. Pavlov gerði ráð fyrir að tengsl
    mynduðust í miðtaugakerfinu milli SÁ og ÓÁ þegar
    skilyrðing ætti sér stað

7
Viðbragðsskilyrðing
8
Viðbragðsskilyrðing
Óskilyrt áreiti (ÓÁ) er áreiti sem vekur áskapaða
svörun, oft ósjálfrátt viðbragð, áður en
skilyrðing á sér stað (í þessu tilviki ætið).
Óskilyrt svörun (ÓS) er svörun við óskilyrta
áreitinu, notuð sem grunnlína til að meta styrk
skilyrtrar svörunar við áður hlutlausu áreiti (í
þessu tilviki slef).
Skilyrt áreiti (SÁ) er áður hlutlaust áreiti
(þ.e. vekur ekki skilyrtu svörunina) sem vekur
skilyrta svörun eftir að hafa verið parað við
óskilyrta áreitið (í þessu tilviki hljóðmerkið
þegar búið er að para það við ætið).
Skilyrt viðbragð (SV) er lærð eða áunnin svörun
svið áreiti sem upphaflega vakti ekki þessa
svörun (í þessu tilviki slef við skilyrta
áreitinu, þ.e. hljóðmerkinu)
9
Viðbragðsskilyrðing
  • Alhæfing
  • Þegar skilyrt svörun hefur verið tengd ákveðnu
    áreiti, vekja svipuð áreiti einnig sömu svörun
  • Sundurgreining
  • Ferli sem er andsætt alhæfingu
  • Alhæfing eru viðbrögð við líkum fyrirbærum, en
    sundurgreining viðbrögð við mismun, þ.e. lífveran
    greinir á milli áreita

10
Raðskilyrðingar skýrir frekar hegðun manna.
Alhæfing getur skýrt fyrir okkur hvernig lík
áreiti vekja líka svörun. Í viðbragsskilyrðingu
vekur tiltekið SÁ væntingu um tiltekið ÓÁ eftir
að áreitin hafa verið pöruð saman.
Pavlov skilyrti hund til að slefa við hljóð í
taktmæli en hann notaði kjötduft sem ÓÁ. Þegar
hljóðið í taktmælinum (SÁ1) var farið að vekja
trausta slefsvörun eitt sér breytti hann aðstæðum
þannig að á undan hljóðinu sýndi hann dýrinu
svartan ferning (SÁ2), en gaf því engan mat.
Eftir að ferningurinn og hljóðið höfðu verið
pöruð saman nokkrum sinnnum kom að því að
ferningurinn einn sér kallaði fram slefsvörun.
Þetta kallast raðskilyrðing . Það sem gerist er
að feringurinn einn skapar væntingu um hljóðið
sem aftur skapar væntingu um mat. Raðskilyrðing
eykur verulega skýringargildi viðbragðsskilyrðinga
r, einkum hvað fólk varðar, enda geta menn geymt
í minni sér langar raðir merkingartengdra atburða.
11
Hægt er að skilyrða óttaviðbrögð
Hægt er að skilyrða tilfinningaleg viðbrögð.
Pavlov tókst óafvitandi að kalla fram
taugaveiklunarviðbrögð í hundi. Ef rottur eru
lokaðar í búri og rafstraumur leiddur í
botngrindina er hægt að kalla fram óttaviðbrögð
hjá þeim án rafstraums.Þetta er gert með því að
kveikja ljós (SÁ) rétt áður en rafstraumnum
(ÓÁ)er hleypt á. Eftir nokkrar slíkar paranir
nægir ljósið eitt sér til að kalla fram viðbrögð
sem benda til þess að dýrið sé óttaslegið.
Fælni getur skapast hjá fólki (einkum börnum) með
viðbragðsskilyrðingu. Þekktasta dæmið um skilyrt
hræðsluviðbragð er tilraun sem Watson og Reyner
gerðu á Alberti litla. Markmið þessarar tilraunar
var að sýna fram á með vísindalegum hætti að hægt
væri að skilyrða hræðsluviðbrögð barna án þess að
vísa þurfti til nokkurra innri þátta. Þetta tókst
og var Albert logandi hræddur við hvíta rottu (SÁ)
12
Viðbragðsskilyrðing
  • Albert litli

ÓÁ
Hávaði
ÓS
Hræðsla við hávaða

Rotta
SS
Hræðsla við rottur
13
Viðbragðsskilyrðing
  • Albert litli

14
Virk skilyrðing
  • B.F. Skinner kom fyrstur fram með hugtakið virk
    skilyrðing. Edward Lee Thorndike gerði athuganir
    sínar á svipuðum tíma og Skinner. Rannsóknir
    Thorndikes marka upphaf rannsókna á virkri
    skilyrðingu.
  • Virk skilyrðing
  • Skilyrðing þar sem atferli lífveru er mótað af
    breytingum á umhverfi sem verða í kjölfar
    atferlisins

15
Virk skilyrðing
  • Um leið og eitthvað atferli hefur átt sér stað
    eru líkurnar á því að það verði endurtekið háðar
    því hverjar afleiðingar þessi hegðun hefur
  • Virk skilyrðing eykur því líkur á tiltekinni
    hegðun ef styrking fylgir í kjölfar hennar
  • Víxlverkun atferlis og umhverfis

16
Virk skilyrðing
Skinnerbúr Búr sem inniheldur matardall, slá þar
fyrir ofan og litla ljósaperu
17
Virk skilyrðing
  • Styrking Þegar ákveðnu atferli fylgja
    afleiðingar sem auka líkur á því að atferlið
    verði endurtekið
  • Skipta má styrkingu niður í jákvæða styrkingu og
    neikvæða styrkingu

18
Atferlismótun
Með virkri skilyrðingu er hægt að móta aftferli.
Kenna t.d. dýrum flókna hluti. Við styrkjum
hverja þá svörun hjá dýri sem líkist lokamarkmiði
hegðunar. Atferlismótun gengur þannig fyrir sig
að við styrkjum með umbun (t.d. matargjöf)
sérhverja svörun sem færir dýr nær takmarkinu.
Atferlissinnar hafa lagt mikla áherslu á
vísindaleg vinnubrögð og nákvæma skráningu á
atferli dýrsins meðan á tilraun stendur.
Algengast er að mæla hvenær og hversu oft rottan
ýtir á slána í tilvikum sem þessum. Hægt er að
tengja við búrið sírita sem virkar þannig að í
hvert sinn sem ýtt er á slána kemur strik á
pappír sem hreyfist með jöfnum hraða framhjá
penna síritans. Þar eð hraði pappírsins er
stöðugur má auðveldlega mæla þann tíma sem líður
milli svarana með því að mæla fjarlægðina milli
pennastrikanna. Venja er að birta niðurstöður úr
tilraunum á virkri skilyrðingu með þessum hætti.
19
Fjögur meginafbrigði virkrar skilyrðingar
Í grófum dráttum getum við flokkað
umhverfisáreitin í tvo flokka Sumt veitir okkur
ánægju og við sækjumst eftir því. Annað veitir
okkur vanlíðan og við forðumst það. Fyrri
umhverfisáhrifin eru jákvæð áreiti en hin síðari
neikvæð. Svaranir geta ýmist orðið til þess að
kalla fram áreiti eða til að fjarlægja það.
Þannig má greina fjögur meginafbrigði virkrar
skilyrðingar
Áreiti birt Áreiti fjarlægt
Jákvætt áreiti Jákvæð styrking Brottnámsskil-yrðing
Neikvætt áreiti Refsing Neikvæð styrking
20
Jákvæð styrking
Svörun dýrs leiðir til umbunar, það er dýrið er
verðlaunað fyrir réttar svaranir. Þetta leiðir
yfirleitt til þess að tíðni þessara svara eykst.
Í dæminu um virka skilyrðingu (bls. 164), varð
matargjöfin til þess að rottan lærði að ýta á
slána. Jákvæð styrking er víða að verki í
mannlegu samfélagi. Dæmi Laun fyrir
vinnuframlag, góðar einkunnir í skóla fyrir vel
unnið verk, punktakerfi við atferlismeðferð, hrós
fyrir að taka til í herberginu sínu.
Styrking er notað um það ferli þegar tíðni
tiltekinnar svörunar hjá dýri er aukin. Áreiti
sem leiðir til aukinnar tíðni svörunar nefnast
hins vegar styrkir. Styrkir, rétt eins og
styrkingin, getur verið ýmist jákvæður eða
neikvæður. Í fyrra tilvikinu er um einskonar
verðlaun að ræða en í hinu síðara hvimleitt
áreiti sem hægt er að losna undan.
21
Refsing
Refsing leiðir til lægri svörunartíðni, svörun
verður til þess að neikvætt óþægilegt áreiti
birtist. Til dæmis mætti koma því þannig fyrir að
í stað þess að umbuna rottunni fyrir að ýta á
slána (með mat) getum við refsað henni (t.d. með
því að leiða rafstraum í botngrindina). Refsingin
leiðir til færri svarana.
Dæmi um refsingu í mannlegu samfélagi eru
fjölmörg. Mönnum er refsað með frelsissviptingu
ef þeir brjóta gegn lögum. Lágar einkunnir í
skóla vegna slælegra vinnubragða, fjarvistarstig
vegna skróps, útgöngubann vegna brota á
útivistarreglum.
Skinner taldi styrking mun öflugri við að móta
hegðun en refsingu
22
Neikvæð styrking
Verður þegar svörun dýrs leiðir til þess að
neikvætt eða óþægilegt áreiti birtist ekki. Dæmi
komu rottu fyrir í Skinnerbúri, kveikjum ljós og
gefum henni raflost 5 sek. Síðar. Rottan lærir
fljótlega að ljósið veit á raflost. Ef búrið er
opið, stekkur rottan úr búrinu þegar kviknar á
ljósinu. Þannig tekst henni að forðast raflostið.
Þetta kallast neikvæð styrking. Ljósið er
neikvæður styrkir.
Dæmi um neikvæða styrkingu er þegar foreldri
hættir að skamma ungling þegar hann hefur tekið
til í herberginu sínu. Skammir eru neikvæður
styrkir á tiltektarhegðun. Foreldri leyfir barni
aftur að koma og horfa á sjónvarp eftir að
óþekktarkasti er lokið. Fjarvistarkerfi í skólum
er neikvæð styrking á að mæta í tíma. Nemendur
geta komist hjá því að fá fjarvistarstig með því
að sýna æskilegu hegðunina, þ.e. mæta í tíma.
Mikilvægt að átta sig á muninum á refsingu og
neikvæðri styrkingu. Refsing dregur úr svörunum
vegna þess að það er refsað fyrir þær. Neikvæð
styrking eykur líkurnar á svörunum vegna þess að
hún gerir lífverunni kleift að forðast eða flýja
óþægilegt áreiti. Skinner taldi að refsing bældi
hegðunina aðeins tímabundið, meða styrking hefur
varanleg áhrif.
23
Brottnámsskilyrðing
Verður þegar svörun leiðir til þess að jákvætt
áreiti er fjarlægt. Dæmi Matarskálin í búrinu
er full og rottan svöng. Ýti rottan á slána er
lokað fyrir skálina stutta stund og hið jákvæða
áreiti er fjarlægt. Við þetta dregur úr svörunum
dýrsins.
Dæmi um brottnámsskilyrðingu er að mæta of seint
í próf (og missa þannig af því) eftir að hafa
lesið vel undir það (góð kunnátta á prófi er
jákvætt áreiti sem viðkomandi missir af).
Unglingur fær ekki lánaðan heimilisbílinn eftir
að hafa komið of seint heim. Í báðum tilvikum má
búast við að viðkomandi forðist að sýna þessa
hegðun aftur af ótta við að missa af þeirri umbun
sem var í boði
24
Hvað er líkt og ólíkt með skilyrðingunum tveimur?
Viðbragðsskilyrðing Virk skilyrðing
Líkt
Festingarskeið Festingarskeið
Slokknun Slokknun
Sjálfkvæm endurheimt Sjálfkvæm endurheimt
Alhæfing Alhæfing
Ólíkt
Tengsl milli áreita annars vegar og áreita og svörunar hins vegar Styrking
Að mestu byggð á ósjálfráðum viðbrögðum Að mestu byggð á viljastýrðri hegðun
25
Virk skilyrðing
  • Samfelld styrking
  • Þegar styrkir fylgir ákveðinni hegðun í hvert
    skipti sem hún er framkvæmd
  • Skert styrking
  • Ákveðin hegðun er aðeins styrkt stundum. Í hin
    skiptin er hegðunin látin afskiptalaus
  • Til eru 4 tegundir skertra styrkingarhátta

26
Styrkingarhættir
Regluleg styrking Óregluleg styrking
Fjöldi svarana ákvarðar styrkingu Regluleg hlutfallsstyrking (RH) Óregluleg hlutfallsstyrking (ÓH)
Tími ræður styrkingu Regluleg tímastyrking (RT) Óregluleg tímastyrking (ÓT)
27
Virk skilyrðing
  • Skert styrking
  • Reglulegur hlutfallsháttur (RH)
  • Styrking verður eftir ákveðinn fjölda af
    óskilyrtum svörunum
  • Rotta fær t.d. alltaf matarbita eftir að
  • hafa ýtt tíu sinnum á slána
  • Akkorð

28
Virk skilyrðing
  • Skert styrking
  • Reglulegur tímaháttur (RT)
  • Fyrsta svörun er styrkt að ákveðnum tíma liðnum
    frá því að síðast var styrkt
  • Rotta fær t.d. alltaf matarbita á einnar
  • mínútu fresti
  • Pósturinn

29
Virk skilyrðing
  • Skert styrking
  • Óreglulegur hlutfallssháttur (ÓH)
  • Styrkt er eftir ákveðinn fjölda óskilyrtra
    svarana, en fjöldi svarana er breytilegur frá
    einni styrkingu til annarrar
  • Tíu ýtingar líða að meðaltali á milli þess
  • sem rottan fær matarbita. Getur þó verið
  • á bilinu 2 til 20 skipti
  • Rauðakrosskassar

30
Virk skilyrðing
  • Skert styrking
  • Óreglulegur tímaháttur (ÓT)
  • Styrkt er eftir ákveðið tímabil sem er breytilegt
    frá einni styrkingu til annarrar
  • Mínúta líður t.d. að meðaltali milli matarbita.
  • Tíminn getur þó rokkað frá 10 sek. til 2ja
  • mínútna
  • Laxveiði

31
Lært úrræðaleysi og flótti og forðun
Lært úrræðaleysi rannsökuðu menn í svokölluðum
flóttabúrum. Búrið er þannig að því er skipt í
tvo jafnstóra helminga með hindrun. Hægt er að
hleypa rafstraumi á gólfflöt annars helmingsins í
einu.
Flótti Ef dýr stekkur yfir vegg eftir að
rafstraumi er hleypt á.
Forðun Ef dýr stekkur áður en rafstraumi er
hleypt á (t.d. ef það kveikt ljós/tónn). Þannig
getur dýrið losnað við raflost.
Lært úrræðaleysi var sett fram til að skýra þá
óvæntu hegðun dýra að reyna ekki að koma sér unda
óþægilegu áreiti eftir að hafa orðið fyrir
viðbragðsskilyrðingu þar sem raflost var notað
sem ÓÁ.
LÆRT ÚRRÆÐALEYSI HJÁ HUNDUM ER HLIÐSTÆTT
ÞUNGLYNDI HJÁ MÖNNUM
32
Samanburður á lærðu úrræðaleysi og þunglyndi
(Seligman, 1975/1991)
Lært úrræðaleysi Þunglyndi (menn)
Einkenni Aðgerðaleysi Eiga erfitt með að læra hvernig vænlegast sé að glíma við streitu. Sýna ekki árásarhneigð við aðstæðum sem að jafnaði ýta undir slíka hegðun. Missa matarlyst, horast, félagslegt áhugaleysi. Noradrenalín minnkar Magasár Rénar með tímanum Aðgerðarleysi lömun viljans. Eru þeirrar skoðunar að þeir fái ekki við neitt ráðið sérstaklega ef um streitu er að ræða. Neikvæðar tilfinningar í eigin garð. Missa matarlyst, leggja af, félagslegt áhugaleysi. Noradrenalín minnkar Magasár? Rénar með tímanum
Orsakir Dýrið lærir að styrking er óháð svörunum Vantrú á eigin getu til að hafa áhrif á gang mála, t.d. ástvinamissir, veikindi.
Meðferð Atferlismeðferð neydd til að sýna svaranir sem eru styrktar Raflost Lyfjameðferð (lyf sem örva framleiðslu noradrenalíns og skyldra boðefna Tími læknar Atferlismeðferð Raflost Lyfjameðferð (lyf sem örva framleiðslu noradrenalins og skyldra boðefna). Tími læknar
33
Atferlismeðferð hefur mörg andlit
Hugtakið atferlismeðferð er notað sem yfirheiti
yfir þau meðferðarform sem byggja á hugmyndafræði
atferlisstefnunnar og eru notuð í klínískri
sálfræði
Meginatriðin í hugmyndafræði atferlismeðferðar er
að nauðsynlegt sé að skilgreina þá hegðun sem
hefur farið aflaga, eða finna grunnlínu hennar,
og ákveða síðan hver hin eiginlega markhegðun er.
Síðan er gengið kerfisbundið til verks í að
breyta hegðuninni eða móta hana í æskilegan
farveg.
Í hugrænni atferlismeðferð er gengið út frá að
hugsun, tilfinningar og atferli séu ætíð nátengd
og því verður að taka tillit til allra þessara
þátta. Byggir á vísindahyggju. Forsvarsmenn, Aron
T Beck og Albert Ellis.
Atferlismeðferð má í grófum dráttum skipta í
tvennt eftir því hvort hún byggir á lögmálum
viðbragðsskilyrðingar eða virkrar skilyrðingar.
34
Kerfisbundin ónæming
Er kennd við geðlækninn Joseph Wolpe. Hefur verið
notuð til að lækna fólk af alls kyns fælni.
Markmið meðferðar er að slökkva á hinni óæskilegu
svörun og laða smám saman fram aðra jákvæðari
svörun gagnvart áreitinu sem fælnin beinist að.
Þetta er yfirleitt gerð með því að
  1. Sálfræðingur og skjólstæðingur búa saman til eins
    konar þrepalíkan fyrir ógnvekjandi aðstæður, frá
    þeim minnst ógnvekjandi og í þær aðstæður sem
    viðkomandi óttast mest af öllu.
  2. Þjálfa skjólstæðing í að slaka á.
  3. Fá skjólstæðing til að fikra sig upp þrepalíkanið
    og læra að slaka á í hverju þrepi fyrir sig,
    fyrst þar sem óttinn er minnstur, og ekki er
    farið upp um þrep fyrr en viðkomandi er orðinn
    fyllilega rólegur á fyrra þrepi

HEFUR VIRKAÐ ÁGÆTLEGA AÐ LÆKNA FÓLK AF HRÆÐSLU
VIÐ DÝR
35
Kvíðaflæði
Fólk er smám saman látið nálgast hinar
kvíðavænlegu aðstæður og er grunnhugmyndin sú
sama, að slökkva á kvíðasvöruninni. Tvær leiðir
sem eru notaðar.
1. Fólk er látið ímynda sér aðstæðurnar þrep
fyrir þrep
2. Fólk er raunverulega látið kljást við aðstæður
36
Óbeitarmeðferð
Byggir á lögmáli óbeitarskilyrðingar. Mest notað
við áfengissýki, eiturlyfjanotkun og afbrigðilega
kynhegðun. Meðferð gengur út á að tengja
fíkniefnið við uppsölulyf eða annan
ógleðivekjandi efni.
Alment er talið að þessi meðferð virki í um 50
tilvika. Hún var mikið notuð með Anabusi (lyf)
sem vekur ógleði þegar það er tekið inn með
áfengi
Uppsölulyf gt ógleðiÁfengi uppsölulyf gt
ógleðiÁfengi gt ógleði
37
Rannsóknir Kamins (1969) og Rescorla (1967)
  • Þeir drógu í efa að tímaþáttur skipti öllu máli í
    viðbragðsskilyrðingu.
  • Kamin paraði hljóðmerki (SÁ1) við raflost ÓÁ.
    Paraði ljós (SÁ2) við hljóðmerki (og ÓÁ).
    Rannsókn Kamins var ætlað að kanna hvort
    upplýsingagildi SÁ1 hefði áhrif á mátt
    skilyrðingarinnar. Kom í ljós að ljósmerkið
    skilyrtist ekki við hljóðmerkið. Ef styrkleiki
    raflosts var aukinn, um leið og ljósmerkið var
    parað við hin áreitin, á skilyrðing sér stað.
  • Rescorla athugaði tímaþáttinn. Komst að því að SÁ
    sem hafa upplýsingagildi fyrir dýr, vega þyngra á
    metunum en tímaþátturinn.

38
Herminám
Herminám er nám sem felst í því að apa eftir
hegðun annarra. Bandaríski sálfræðingurinn Albert
Bandura stóð fyrir tímamótarannsóknum á þessu
sviði. Bandura athugaði árásarhneigð barna eftir
að þau höfðu horft á ofbeldismynd. Árásarhneigð
metið út frá viðbrögðum barna við dúkkuna Bóbó.
Vekur upp spurningar varðandi ofbeldisefni í
fjölmiðlum
Dúkkan Bóbó í rannsókn Bandura
39
Innsæi Köhlers
Köhler notaði apann Soldán í rannsóknum á innsæi.
Hann vildi athuga hvort apar gætu nýtt sér
einföld tól og tæki til að leysa ákveðnar
þrautir. Þrautirnar fólust í því að ávöxtum var
komið fyrir utan búr, dýrin áttu að reyna að
krækja í ávextina með tólum. Innsæishegðun er að
mörgu leyti frábrugðin tengslanámi. Þegar dýr
beitir innsæi við nám er það sjálft virkur aðili
að náminu. Aparnir sýndu frumstæð merki þess að
búa yfir hugsun og vera færir um æðra nám.
Apinn Soldán, hugarfóstur Köhlers
40
Hugarkort Tolmans
Völundarhús Tolmans
Tolman taldi líka að rottur sem þurftu að læra á
völundarhús til að næla sér í fæðu,sýndu merki um
annað og meira en einbert tengslanám. Þær voru
að hans mati færar um að búa til hugarkort af
aðstæðunum. Með hugarkorti átti hann við ein
konar hugræna táknmynd af umhverfinu ekki ósvipað
þeirri sem leigubílstjórar þurfa að haa til að
rata um bæinn. Dýr eru fær um flóknara nám en
tengslanám. Það kemur heim og saman við kenningu
Darwins um að æðri hugsun manna sé afsprengi
þóunar vitsmuna hjá einfaldari lífverum.
41
Hugtök eru forsenda hugsunar og æðra náms
Hugtök eru grunneiningar hugsunar og taka til
ákveðinna flokka staka sem undir þau falla.
Hugtök eru með öðrum orðum mengi þeirra
eiginleika sem við tengjum við ákveðinn flokk.
Hugtök erum misskýr (hundur leikur). Hugtök eru
forsenda allrar hugsunar því án þeirra gætu menn
og dýr ekki áttað sig á samhengi þeirra hluta og
fyrirbæra sem þeir rekast á í daglegu lífi.
Hugtök lýsa flokkun. Hugtök og orð eru ekki sama
fyrirbærið þó samsvörun sé þar á milli.
42
Hugtakanám
Tvær rannsóknir Clark HullNotaði kínversk
rittákn í rannsókn sinni. Reyndi að sýna fram á
að hugtök mætti læra líkt og hundur lærir að
slefa við bjölluhljóm Jerome BrunerEinn helsti
talsmaður þess að ítroðsla sé lítt vænleg til að
efla þroska, þekkingu eða skilning nemenda.
Markmið með tilraun Bruners var að kanna hvernig
fólk lýsir eiginleikum hugtaka.
Write a Comment
User Comments (0)
About PowerShow.com